Mögulega Vinalegasta Bónstöð Landsins

Buddy Bíladekur er vinalegasta bónstöðin í Reykjanesbæ. Með því að bjóða samkeppnishæf verð og vönduð vinnubrögð. Þannig náum við að mynda góð tengsl við okkar viðskiptavini og þægilegra viðmót. Einnig bjóðum við bæði góða og sveigjanlega þjónustu fyrir vinnandi fólk eða fólk sem kemst ekki út úr húsi vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Við erum með margra ára reynslu í þrifum og öðrum störfum í kringum bíla.

Buddy Bíladekur stofnað þann 5. Maí 2020, af Birki Guðsteinssyni. Birkir Guðsteinsson er Vestmannaeyjingur í blóði og uppalinn sunnlendingur. Birkir er vanur rekstrarstörfum og störfum í kringum bíla fyrst í þrifum sem ungur peyji og næst þegar hann starfaði hjá bílaleigu á svæðinu frá 2017-2019 Þaðan fór hann í verkstæðismóttökustörf og nú síðast í rekstur á vinalegustu bónstöðini í Reykjanesbæ. Buddy Bíladekur er bara grunnur að flottu og vönduðu fyrirtæki með stór markmið.

Vinaleg þjónusta og góð verð eru markmið Buddy. Komdu með bílinn til okkar í alþrif og farðu sáttur heim á hreinum bíl

Umfjallanir & Umsagnir

go top